02. apríl 2010 klukkan 09:53
Hæ hæ! Allt gott að frétta af þessum bæ. Ég verð að éta ofan í mig neikvæðina um Herbalife og segi að Herbalife gerir gott.
Það styrkir mann og er orkugefandi. Hefur áhrif á svo margt.En.... ég ætla að fara í næsta aðhald sem byrjar 14.apríl ög reyna að sleppa að mestu að taka Herbalife.
Ég er að mála myndir t.d eina kisu sem býr með egandanum upp á lofti. Svo er ég alltaf að mála andlitslausar maddömur í þjóðbúnginum. Aðeins búin að selja 2 þjóðbúngamyndir, auk kisunnar á 2 hæðinni.
í kvöld erum við boðið í kvöldmat hjá Bjögga og Elsu hlakka til.

. Fleira ekki gert og fundi slitið..
Sigríđur Finnbogadóttir
24. febrúar 2010 klukkan 15:26
Ég er í átaki uppi í skóla. Einu sinni í viku erum við viktaðar og mældar stundum. Ég er búin að missa 5 kíló og 4 cm.eru farnar í ummáli. Þetta er dulið Herbalife og konurnar eru að kaupa fyrir þúsundir.
Ég lét glópast og keypti heilsu te,omega 3 í herbalife og herbalife töflur sem taka 20 mínutur fyrir mat. Ég man aldrei eftir þeim fyrr en maturinn er tilbúin. omega 3 ætla ég bara að kaupa mér í apóteki. Kasinn með herbalife var vandlega falinn fyrstu vikurnar svo fór verslunin fram á fullu.
Í örvæntingu sinni þustu konurnar til sölukonunnar og versluðu og versluðu. Það eru 5 vikur eftir af þessu átaki.
Og ég nærist á vatni og banönum mjög lítinn mat.Við fáum svo fyrirlestur um mat og drykk
svo þetta er ekki bara salan .Í kvöld verður sjeik smakk.
Ef maður hefur lést fær maður verðlaun. En bæti maður á sig borgar maður 100 kr. fyrir hver 100 pund.
Sigríđur Finnbogadóttir
21. febrúar 2010 klukkan 16:39
Aðeins að koma við. Sit hérna með bakið sem snýr að glugganum sól og blíða.
Var að spá í að fara með Manna upp í hesthús en hætti svo við. Það eru 12 hestar sem við erum með í húsi. 8 folöld, 2 graddar og tvær merar. Reynum að spekja folöldin, bindum þau sér í bási og klöppunum og kembun.
Ég verð að segja að mér er ekki rótt þegar graddarnir eru úti þá held ég mig inni í hesthúsinu.
Jónas bróðir Manna er að hjálpa til.
Ásdís og Bjarki eiga 7 folöld,þegar þau fóru út til Noregs og báðu okkur um að sjá um folöldin.. Þarf að kaupa sælgæti og senda þeim,sendi þeim harðfisk um daginn. Svo á ´ég von á pakka frá Ásdísi. lykke til
Sigríđur Finnbogadóttir
21. janúar 2010 klukkan 11:09
hæ! ég var 6 vikur á Reykjalundi og það var æðislegt. Allir í einbýli og hafði hver og einn sinn eigin sjúkraþjálfa, iðjuþjálfa,hjúkrunarfræðing og lækni. Lítil kaffikrókur með sjónvarpi fylgdi ganginum og gátum hellt okkur upp á kaffi.
Ég vildi læra sund var bæði vatnshrædd og tínt niður sundtökin. Ég fékk að sjálfsögðu eigin sundkennara og tóst að synda baksund þvera og endilanga. Ég tók að sjáf sögðu þátt í vatnsleikfimi. Einn daginn í litlu lauginni fannst okkur við finna megna klórlykt. Þegar við komin uppúr lauginni hafði klórinn klórað sundfötin þannig að svarti sundbolurinn minn varð silfurgrár með röndum.
Í gærkvöldi byrjaði ég í alvöru átaki alvöru vigt og fræðsla. Takmakið er að losna um 10 kíló umfram það er bara bónur.
Sigríđur Finnbogadóttir
11. janúar 2010 klukkan 15:17
Lokað verður frá kl.17. og fram á næsta fimmtudag kl.17. vegna tiltektar í umþb.2 metra radíus frá eigenda
Um leið verður gripið til vörutalninga í skúffum við hliðina á tölvu en það er farið að fyllast kúfurinn á kommóðinni og renna niður á gólf. Alveg eins og hjá og þú veist tí hí.
Sigríđur Finnbogadóttir
31. október 2009 klukkan 17:42
hér á eftir kemur smá lítið sem gott er að hugleiða heima komið ykkur fyrir og hafið þetta á rólegu nótum
hitið upp með óma 3var , hitum líkama ykkur kveikið á reykelsi og kertum.
Sjálskærleikur. Kærleikurinn er meðalið sem hraðar batanum heilunin.Það er ekkert annað meðal en ósikyrtur kærleikur . Það eru að eru til milljónir leiðungis ir til að sýna gleði/hamingju þína en það er einings ein leið að raun rauverunlegri það er kærleikuirr að elska.
Sigríđur Finnbogadóttir
26. október 2009 klukkan 20:09
'Ég er busy þessa dagana. Ég er á myndllistarnámskeiði sem er ansi krefjandi. Veit ekki hvað ég á að gera við þessar myndi
r , aðal themað er peysufatakonur einstaka karl slæðist með . Ég ætti að selja myndir er ein tillagan Ætla að vita á upplýsingarbúðinni I ,annars fara þær undir hjónarúmi ásamt öðrum meistaraverkum.
Síðast þegar ég fór suður keypti ég mér borðtrönu akrílliti og blindramma.
Manni fer í aðgerð þ.4.nóv ég verð á meðan í bænum, Enginn treystir mér til að vera eina heima. Aðalþrýstingur er fram Manna,
Sigríđur Finnbogadóttir
17. október 2009 klukkan 18:32
Sæl öll saman. Þá er komið að næsta pisli. Lyfin og lyfin við aukaverkunum eru að bögga mig ,þarf kanske lyf við aukaverkunum.tíhí. Ég fer í ræktina 2.3.svar í viku en satt best að segja reyni ég ekki nógu mikið á mig.
Ég er á lista hjá Reykjalundi þar kemst maður ekki i upp með nein undanbrögð. Hér í Borgarnesi var haldin Sauðamessa í 5-6 skiptið í röð. Rollur rektar niður helstu aðalgötuna. bazar og kappát. eitthvað fleira.
Ætla að tapa 15 kg eða meira á Reiykja lundar. Ég var að taka til í fataskápnum mínum
henti fullum poka og fór með hann í rauðakrossinum suss suss meirihlutinn er alltof litil,
Ég keyfti mér svona lufsu peysu núna í vikunni hún hilur afellur.
ÉG ER HREIKIN með mig laugardags lesbókinni kom ljóð eftir mig og konan sem sér um lesbókina spurði hvort ég ætti ekki fleiri ljóð.
Síðan birti Borgfirðingur logal blað þeir 2 ljóð.
Bæjó píví
Sigríđur Finnbogadóttir
28. september 2009 klukkan 16:24
Raggi dagsins.
Heyr mitt ljúfasta lag,
er ég lék forðum daga.
Fyrir ljóshærða stúlku sem heillaði mig,
þegar ungur ég var.
Já Raggi boy er sami sjérmörinn og var og þegar ég var lítil á Arnarhóli.Þá hlakkaði maður svo mikið til þegar tjöldin risu á Lækjartorgi og von var á Ragga Bjarna að syngja þar var..Við systurnar þrjár fórum á tónleika í Höllinni með Ragga á Laugardaginn það var óborganlegt rosa stuð. Fleiri söngvarar komu fram sem hafa sungið eða leikið með honum og hljómsvein Húsið ,það var fullt af fólki og risið var á fætur þegar þess var þörf
Nokkru sinnum gleymdi hann textanum og trallaði með hljómsveitinni og sagði æ !nú er ég búinn að gleyma þessu.Hann fékk jafnvel meira klapp þegar þetta gerðist.
Ég var hugsi þegar Raggi þurkaði af sér svitann hvort hjarta stuðtæki væri á bak við sviðið.
En þess var ekki þörf heldur sönd Raggi á sviðinu nær allan tímann.
Til hamingju Ragnar Bjarnason
Sigríđur Finnbogadóttir
24. september 2009 klukkan 16:56
Þarafrumskógur
Augu í vatni vaka blá
votum steinum stara.
Útrétt hendi hreyfist grá
höfuð reyrt í þara.
Andlit fellur andlit á
gárar milli vara.
Sigríđur Finnbogadóttir